Um Bíla og hjól

Bílaverkstæði sem tekur á fjölmörgum þáttum í viðhaldi og endurbótum bifreiða og mótorhjóla – síðan 2003.

Bílar og hjól ehf. er fyrsta flokks þjónustuverkstæði fyrir allar gerðir bifreiða. Hjá fyrirtækinu starfar starfsfólk með áralanga reynslu í bifvélaviðgerðum, bílamálun og réttingum.

Upprunalega tók fyrirtækið aðeins að sér bílasprautun, réttingar og tjónaskoðanir en síðan þá höfum við bætt töluvert við starfsemina. Ásamt útlitslagfæringum bjóðum við upp á almenna smurþjónustu og ýmsar almennar viðgerðir, og erum jafnframt þjónustuaðili Öskju fyrir KIA bifreiðar og þjónustuaðili Bernhard á HONDA bifreiðum.

Fyrirtækið var stofnað árið 2003 af bílamálaranum Garðari Hauki Gunnarssyni. Garðar á og rekur verkstæðið til þessa dags.

Starfsmenn að störfum á verkstæðinu
Sagan

Frá sprautuverkstæði að alhliða þjónustu

  1. 2003
    Stofnað

    Bílamálarinn Garðar Haukur Gunnarsson stofnar Bíla og hjól. Í upphafi bílasprautun, réttingar og tjónaskoðanir.

  2. ·
    Fleiri þjónustuleiðir

    Almenn smurþjónusta og ýmsar almennar viðgerðir bætast við útlitslagfæringarnar.

  3. ·
    KIA og HONDA

    Verkstæðið verður þjónustuaðili Öskju fyrir KIA og Bernhard fyrir HONDA.

  4. 2018
    Umhverfisstefna

    Umhverfisstefna Bíla og hjóla sett fram.

  5. Í dag
    Vottað verkstæði

    BGS-vottað verkstæði með fimm stjörnur hjá Sjóvá. Garðar á og rekur verkstæðið til þessa dags.

Vottanir og samstarf

Gæði sem eru vottuð

BGS vottuð þjónustaBGS vottað

Bílgreinasambandið hefur vottað gæði og ferla á verkstæðinu.

5★Fimm stjörnur hjá Sjóvá

Sjóvá byggir stjörnugjöf sína á BGS-vottuninni.

KIAKIA þjónusta

Þjónustuaðili Öskju fyrir KIA bifreiðar.

HONDAHONDA þjónusta

Viðurkenndur þjónustuaðili fyrir HONDA.

Umhverfisstefna 2018

Umhverfismál eru forgangsmál

  • Umhverfismál eru á meðal forgangsverkefna Bíla og hjóla ehf. og mun fyrirtækið aðlaga starfshætti og rekstur að ábyrgri afstöðu til umhverfisverndar.
  • Stöðugt ber að fylgja eftir stefnumótun og stjórnun umhverfismála í ljósi nýrra laga og reglna, starfshátta atvinnugreinarinnar, tækniþróunar, þarfa neytenda og væntinga almennings.
  • Bílar og hjól hefur frumkvæði að endurbótum á starfsháttum sem leiða til betri umhverfisverndar.
  • Bílar og hjól mun þjálfa og hvetja starfsmenn til að sinna störfum með fullu tilliti til umhverfisverndar.
  • Bílar og hjól tekur tillit til umhverfisþátta, s.s. orkuneyslu og nýtingar hráefnis, við val á vörum, birgjum og flutningstækjum og heldur neikvæðum umhverfisáhrifum í lágmarki, m.a. með réttri förgun sorps og úrgangsolíu.
  • Bílar og hjól mun skipuleggja og skrá neyðaráætlun um viðbrögð á hættustundum sem endurspeglast í áhættugreiningu fyrirtækisins.
  • Bílar og hjól mun skipuleggja umbætur í umhverfismálum.

Núverandi verkefni í umhverfismálum

Endurnýting

Takmörkum kaup á varahlutum með endurnýtingu notaðra gæðavarahluta.

Flokkun

Fastur úrgangur – plast, pappír/pappi, járn og gler – er flokkaður og fluttur á endurvinnslustöðvar.

Olía og spilliefni

Olíu og spilliefnum er safnað saman og þau send til endurvinnslu eða eyðingar.

Rafgeymar

Notaðir rafgeymar og hættulegur úrgangur eru sendir til endurvinnslu.

Pappír

Endurunninn pappír er notaður þar sem því verður við komið.

Umhverfisvæn efni

Umhverfisvæn efni eru notuð þegar mögulegt er.

Unnið er eftir lista um hvað og hvernig eigi að flokka úrgang til endurvinnslu og allar upplýsingar um umhverfisvernd, endurvinnslu og flokkun eru sýnilegar starfsfólki og viðskiptavinum.

Komdu við á Njarðarbraut 11a

Við tökum vel á móti þér og bílnum.