Tryggingatjón

Við þjónustum öll helstu tryggingafélög og sjáum um að koma upplýsingum um tjónið til þeirra.

Bílgreinasambandið hefur vottað gæði og ferla á verkstæðinu okkar. Sjóvá byggir sína stjörnugjöf á þessari vottun og Bílar og hjól er því eitt þeirra tjónaviðgerðaverkstæða sem fá fimm stjörnur frá Sjóvá.

Bílar og hjól styðst við tjónamatskerfið CABAS í samvinnu við íslensk tryggingafélög. Við tökum á móti öllum tryggingatjónum, metum umfang tjóns og áætlum viðgerðartíma. Verkstæðið sér svo um að koma nauðsynlegum upplýsingum um tjónið til viðkomandi tryggingafélags.

Við þjónustum öll helstu tryggingafélög

Sjóvá
VÍS
TM
Vörður
BGS vottuð þjónusta