KIA þjónusta

Við erum þjónustuaðili Öskju fyrir KIA bifreiðar – reglubundið þjónustueftirlit heldur 7 ára ábyrgðinni í gildi.

7 ára ábyrgð Kia er ein umfangsmesta ábyrgð sem völ er á. Í þjónustuhandbók Kia og ábyrgðarskilmálum er að finna greinargóða lýsingu á ábyrgðinni, skyldum Kia, Öskju og Kia eigenda og því sem ábyrgðin nær og nær ekki til.

Forsendur ábyrgðar

Til að uppfylla ábyrgðarskilmálana þarf að fara með Kia bifreiðina í reglubundið þjónustueftirlit samkvæmt fyrirmælum framleiðanda. Forsendur ábyrgðar eru reglulegt þjónustueftirlit sem kaupandi ber kostnað af.

Viðgerðir sem falla undir ábyrgð

Þú ferð með Kia bifreiðina ásamt þjónustuhandbókinni til viðurkennds þjónustuaðila Kia. Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Kia geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð.

Skilmálar 7 ára ábyrgðar á kia.com →